Boðið er upp á fimm mismunandi leiðir til að koma stafrænu myndunum þínum í framköllun.
Það skiptir í raun ekki máli á hvaða geymsluformi þú geymir myndirnar þínar, tekið er við flest öllum gerðum.
1. Þú getur komið með minniskortið til okkar í Ármúla 38 eða á afgreiðslu Íslandspósts og við framköllun beint af því
2. Þú getur líka skrifað þær myndir sem þú vilt fá framkallaðar beint á geisladisk og komið með diskinn til okkar á sömu staði.
3. Þú getur líka komið minnislykli með myndunum þínum á til okkar.
4. Þú sendir okkur myndirnar yfir netið
Það er mjög einfalt og þægilegt að senda okkur myndirnar yfir netið. Best er að senda myndirnar með netframköllunarhugbúnaðinum okkar. Hann er mjög einfaldur í notkun og allur á íslensku. Þú einfaldlega nálgast hugbúnaðinn (á slóðinni http://www.hanspetersen.is/?pageid=45), hleður honum niður í tölvuna hjá þér og byrjar að nota hann. Nánari leiðbeiningar með uppsetningu, innskráningu og að nota hugbúnaðinn getur þú nálgast á vefsíðu Hans Petersen.
5. Þú getur líka sent okkur tölvupóst með myndirnar sem viðhengi. Best er að senda myndirnar á netfangið mynd@hanspetersen.is. Rétt er þó að benda á að myndirnar verða að vera viðhengi en ekki límdar (paste) beint í póstinn. Einnig getur þessi aðferð verið tímafrek ef þú ert að senda mikið af myndum.
Öll framköllun fer fram á KODAK gæðapappír.
Skoða fleiri vörur frá Hans Petersen