Points.is er ný þjónusta á Íslandi fyrir korthafa Kreditkorta hf. Points.is er einskonar „Punkta-banki“ þar sem viðskiptavinir Kreditkorta hf geta nálgast þá punkta sem þeir hafa safnað sér með kortanotkun sinni og nýtt punktana til kaupa á margskonar vöru og þjónustu. Ferlið er mjög einfalt og með kennitölu og lykilorði getur viðskiptavinur séð á augabragði hvað hann/hún getur keypt sér fyrir punktana sína.
Hægt er safna points-punktum í dag með eftirfarandi MasterCard kortum:
Ef upplýsinga er óskað um punktastöðu eða annað sem tengist kortum MasterCard er afgreiðsla Kreditkort opin kl. 9-16:30 alla virka daga í síma 550-1500. Einnig er hægt að senda fyrirspurn á kreditkort@kreditkort.is.
Points.is er í eigu Punktakerfis ehf og er skrifstofa félagsins að Hátúni 6a, 105 Reykjavík. Síminn hjá Points Systems er 511-1004 og er tekið á móti fyrirspurnum á milli 10-16 alla virka daga. Einnig er hægt að senda fyrirspurn á points@points.is.
Points.is er í eigu Punktakerfis ehf. Hátúni 6a, 105 Reykjavík.
Með því að samþykkja þessa skilmála er viðskiptavinur að stofna punktareikning í sínu nafni á Points.is. Þá samþykkir viðskiptavinur að hlíta í einu og öllu eftirfarandi skilmálum og víkja aldrei frá þeim á nokkurn hátt. Viðskiptavinur eignast punkta með notkun sinni á eftirfarandi Mastercard kreditkortum:
Viðskiptavinur getur notað þá punkta sem hann á til að kaupa ýmsar vörur og þjónustu á Points.is. Í hverjum mánuði fær viðskiptavinur sent í tölvupósti yfirlit um punktastöðu sína og þær vörur sem keyptar hafa verið.
Viðskiptavinur hefur alltaf kost á að kaupa þær vörur sem í boði eru á Points.is, að því gefnu að hann eigi tilskilinn fjölda punkta. Points.is ber ekki ábyrgð á því ef vara sem keypt er fyrir punkta er uppseld en skuldbindur sig til að færa punkta aftur inn á punktareikning viðskiptavinar að beiðni hans. Það er gert með því að senda beiðni á netfangið points@points.is en bakfærsla er aðeins gerð ef kóðinn á gjafabréfinu hefur ekki verið notaður.
Með því að sækja um aðild að Points.is heimilar umsækjandi Punktakerfum ehf. að nota allar skráðar upplýsingar, þ.m.t. tölvupóstfang, til markaðssetningar fyrir Points.is. Upplýsingar um umsækjendur verða aldrei seldar eða notaðar á neinn hátt af þriðja aðila og munu aðeins verða notaðar af Points.is til að kynna fyrir umsækjendum góð tilboð sem hægt er að nýta fyrir punkta. Skoðast samþykki á þessum skilmálum sem fyrirfram samþykki í skilningi 1. mgr. 46. gr. fjarskiptalaga, en umsækjandi getur alltaf afturkallað þetta samþykki sitt.
Séu punktar ekki nýttir innan tveggja ára fyrnast 50% þeirra. Sé afgangurinn af punktunum ekki notaður innan árs þá fyrnast þeir endanlega.
Hægt er að millifæra punkta af einni kennitölu yfir á aðra, að því gefnu að báðar kennitölurnar séu skráðar hjá Points.is. Þóknun fyrir millifærslu er 1,5% af þeim punktum sem millifærðir eru.